Gjaldskrá Rangárhallarinnar

Aðgangur og gjaldskrá Rangárhallarinnar 2026

Skuldlausir aðilar hafa aðgang að höllinni með rafrænu aðgangsnúmeri sem hægt er að sækja um með því að senda tölvupóst á rangarhollin@gmail.com. Í tölvupósti þarf að koma fram nafn og kennitala greiðanda auk áskriftarleiðar sem óskað er eftir.

Opnunartími reiðhallar með rafrænum aðgangi verður frá kl. 07:00 – 22:00. Reiðhöllinni er skipt í tvennt með skilrúmi og er innra svæðið stærra reiðsvæðið. Einnig er hægt að skipta stærri svæðinu upp og er þá höllin þrískipt.

Reiðhöllin er vöktuð með öryggismyndavélum. Ef ytri hurð er lokuð er höllin lokuð fyrir allri notkun / aðgangi.

Á meðan bókaðir tímar eru á stærra reiðsvæði er minna svæðið öllum opið. Það þarf að lágmarki sólahrings fyrirvara til að leigja höllina til einkanota.

Það getur tekið allt að 24 tímum að virkja lykla frá því að um áskrift hefur verið samið.

Helgarútleiga / langtímaleiga eða leiga til námskeiðahalds er samkvæmt samkomulagi við formann Rangárhallarinnar á rangarhollin@gmail.com

Börn undir sextán ára aldri þurfa að vera í fylgd fullorðinna / forráðamanna og hafa þau aðgang gegnum áskrift foreldris.

Aðgengi er háð því að höllin sé ekki frátekin fyrir viðburði eða útleigu til einkanota, sjá dagatal Rangárhallarinnar

Notkunarreglur reiðhallar má finna hér

Stíur í Stóðhestahúsinu, Rangárbakkar í samstarfi við Rangárhöllina ætla að bæta aðstöðu notenda Rangárhallarinnar og Rangárbakka með því að bjóða stíur í stóðhestahúsinu lausar til afnota fyrir notendur Rangárhallarinnar og Rangárbakka. Þar geta notendur á svæðinu því geymt hesta á meðan þjálfað er í reiðhöllinni á opnunartíma hennar. Ekki verður heimilt að nota þessi pláss utan opnunartíma hallarinnar. Hver stía verður merkt styrktaraðila og er heimilt að festa upp auglýsingu á stíuna.

 

Verðskrá 2026 án vsk.

Rangárhöllin

1 mánuður – 10.000

Árgjald, einstaklingur – 30.000

Árgjald, fjölskylda eða bú – 50.000

Stía með aðgangi að Rangárhöllinni (ekki til nátta)
1.janúar til 31.ágúst – 150.000- 

Gjaldskrá til einkanota:
Stakir tímar (1. klst.), ⅔ af höllinni kr. 12.000
Stakir tímar (1. klst.), öll höllin, kr. 16.000

Hægt er að leigja stíu í Stóðhestahúsinu fyrir einstaklinga, áhugasamir hafi samband við formann Rangárbakka eða senda tölvupóst á rangarhollin@gmail.com

Einnig er hægt að fá frekari upplýsingar um leigu, lykla og annað varðandi Rangárhöllinna og Stóðhestahúsið hjá Sóleyju Margeirsdóttur í síma 8677460.

Hlökkum til að heyra frá ykkur!