Fátt gleður hestamanninn meira en að opna jólapakkann og þar leynist miði á Landsmót hestamanna 2020!

Miðaverð í forsölu er aðeins 16.900 kr. Forsölu lýkur um áramót, 31.12.2019.

Ef þú vilt tryggja þér miða í forsölu og um leið styðja við þitt hestamannafélag þá finnurðu það í listanum hér og kaupir miða þar í gegn!

https://www.landsmot.is/…/forsala-adgongumida-i-fullum-gangi

Miðaverð í forsölu er 16.900 kr, fullt verð í hliði á mótinu sjálfu er 24.900 kr og því mikill sparnaður að tryggja sér miða strax.

Helgarpassar fara í sölu eftir áramót og munu þeir þá kosta 16.900 kr.

Á Landsmóti hestamanna á Hellu næsta sumar verður boðið uppá frábæra skemmtun, nútímaleg tjaldsvæði, margir af helstu skemmtikröftum landsins munu koma fram, veitingar verða í hávegum hafðar og aðstaðan öll eins og best verður á kosið!

Ef einhverjar spurningar eru varðandi Landsmót hestamanna 2020 þá ekki hika við að hafa samband á landsmot@landsmot.is

Tökum höndum saman – styðjum félagið og tryggjum okkur um leið miða á Landsmót hestamanna 2020 á besta mögulega verði!