Senn líður að því að umsóknarfrestur fyrir Suðurlandsdeildina 2021 rennur út en ný lið þurfa að skila inn umsókn eigi síðar en 31. október n.k.

Frábær stemning hefur verið í deildinni síðustu ár og er sko enginn bilbugur á fólki þó COVID hafi vissulega sett strik í reikninginn á síðasta keppnistímabili. En það þýðir ekkert annað en áfram gakk!

Nú er tækifæri til þess að setja saman lið og vera með á komandi keppnistímabili í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu! Fjögur sæti eru laus í deildinni þar sem stjórn hefur ákveðið að fjölga um tvö lið vegna mikillar eftirspurnar.

Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 31. október. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn 3 áhugamanna og 2-3 atvinnumanna.

Liðin verða áfram skipuð 2-3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Á hverju kvöldi keppa 2 áhugamenn og 2 atvinnumenn, nema á lokakvöldinu – þá geta allir keppt. Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Áfram verður Suðurlandsdeildin einungis liðakeppni en þrjú stigahæstu liðin verða verðlaunuð.

Atvinnumaður: Allir ásamt ungmennum.

Áhugamaður: Er að lágmarki 22 ára á árinu og má ekki hafa keppt í meistaraflokk síðustu 2 ár.

Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngangsskilyrði.

Suðurlandsdeildin hefst þann 2. febrúar 2021 þar sem keppt verður í parafimi. Keppniskvöldin verða fjögur. Á síðasta kvöldinu verður einnig keppt í skeiði og keppir þá einn áhugamaður og einn atvinnumaður eða tveir áhugamenn fyrir hvert lið í þeirri grein. Ætlast er til að allir liðsmenn keppi a.m.k. einu sinni á tímabilinu.

Dagsetningar móta hafa verið ákveðnar með fyrirvara um niðurröðun greina.

  1. febrúar – Parafimi
  2. febrúar – Fjórgangur
  3. mars – Fimmgangur
  4. mars – Tölt og skeið
  5. mars – lokahóf

Umsóknarfrestur er til 31. október.

Þátttökugjald er 140.000 kr.

Allar spurningar sem og umsóknir vegna Suðurlandsdeildar skulu sendar á rangarhollin@gmail.com.

Hvetjum hestamenn að safna saman í lið og sækja um í Suðurlandsdeildina 2021.

Sjáumst í Rangárhöllinni í vetur!